
• Hreinsaðu ofninn að innan eftir hverja
notkun. Uppsöfnun fitu og annarra
matarleifa kann að leiða til eldsvoða.
Áhættan er meiri hvað varðar
grillskúffuna.
• Hreinsaðu langvarandi óhreinindi með
sérstökum ofnahreinsi.
• Hreinsaðu alla aukahluti eftir hverja
notkun og láttu þá þorna. Notaðu
mjúkan klút með volgu vatni og
hreinsiefni.
• Ef þú ert með fylgihluti sem matur festist
ekki við skal ekki hreinsa þá með hörðum
efnum, hlutum með beittum brúnum eða í
uppþvottavél. Það getur valdið
skemmdum á viðloðunarfríu húðinni.
Heimilistæki úr ryðfríu stáli eða áli
Hreinsaðu ofnhurðina aðeins
með blautum svampi. Þurrkaðu
hana með mjúkum klút.
Ekki nota stálull, sýrur eða
svarfefni þar sem þau geta
skemmt yfirborð ofnsins.
Hreinsaðu stjórnborð ofnsins með
sömu varúðarráðstöfunum.
Að fjarlægja hilluberana
Til að hreinsa ofninn skaltu fjarlægja
hilluberana.
1
Togaðu framhluta
hilluberans frá
hliðarveggnum.
2
Togaðu afturenda
hilluberans frá
hliðarveggnum og
fjarlægðu hann.
Settu hilluberana upp í öfugri röð.
Rúnnuðu endarnir á hilluberunum
verða að vísa fram.
Eldglæðing
VARÚÐ! Fjarlægðu alla aukahluti
og lausa hillubera. Ekki láta lausu
hilluberana vera í heimilistækinu
á meðan á hreinsunarferlinu
stendur. Hætta er á skemmdum.
AÐVÖRUN! Heimilistækið verður
mjög heitt. Hætta er á bruna.
Ekki byrja eldglæðingu ef þú
lokaðir ekki ofnhurðinni til fulls.
VARÚÐ! Ekki nota
eldunarhelluna um leið og
eldglæðingaraðgerðina. Það
getur valdið skemmdum á
heimilistækinu.
1. Fjarlægja skal verstu óhreinindin
handvirkt.
2. Hreinsaðu innri hlið hurðarinnar með
heitu vatni þannig að leifarnar brenni
ekki í heita loftinu.
3. Stilltu eldglæðingaraðgerðina. Sjá
„Ofnaðgerðir“.
4. Þegar skjárinn sýnir P1 skaltu ýta á til
að setja ferlið af stað.
Þú getur notað aðgerðina Endir til að
fresta ræsingu hreinsunarferlisins.
Á meðan á eldglæðingu stendur er
slökkt á ofnljósinu.
Hreinsunarferlið tekur 2
klukkustundir.
ÍSLENSKA 19
Komentarze do niniejszej Instrukcji