IKEA OV20 Instrukcja Użytkownika Strona 15

  • Pobierz
  • Dodaj do moich podręczników
  • Drukuj
  • Strona
    / 32
  • Spis treści
  • BOOKMARKI
  • Oceniono. / 5. Na podstawie oceny klientów
Przeglądanie stron 14
Lítil skörð efst auka öryggi.
Skörðin eru einnig búnaður til
varnar því að aukabúnaður
hvolfist. Háa brúnin umhverfis
hilluna kemur í veg fyrir að
eldunaráhöld renni til.
Kjöthitamælirinn notaður
Kjöthitamælir mælir hitastigið inni í kjarna
kjötstykksins. Þegar kjötið hefur náð
markhitastigi, slekkur ofninn á sér.
Stilla þarf tvö hitastig:
Hitastig ofnsins.
markhitastig kjöthitamælisins. Sjá gildin í
töflunni.
Mælt er með eftirfarandi markhitastigi á
kjöthitamælinum
50 °C Léttsteikt
60 °C Miðlungs
70 °C Gegnsteikt
VARÚÐ! Notaðu aðeins þann
kjöthitamæli sem fylgir með
tækinu, eða ekta varahluti.
1. Stilla skal aðgerðina fyrir ofninn og
hitastigið á ofninum.
2. Stingdu oddi kjöthitamælisins inn í
kjarna kjötstykkisins.
3. Settu klóna á kjöthitamælinum inn í
innstunguna á hlið heimilistækisins.
Gættu þess að kjöthitamælirinn sé allan
tímann vandlega skorðaður í kjötinu og
tengdur í innstunguna.
Þegar þú notar kjöthitamælinn í fyrsta
sinn er sjálfgefið hitastig 60°C. Á meðan
leiftrar getur þú notað hnúðinn fyrir
hitastigið til að breyta sjálfgefnu
markgildi fyrir kjötið.
Skjárinn birtir tákn fyrir kjöthitamælinn
og sjálfgefið markgildi fyrir hitastig kjötsins.
4. Ýttu á til að vista nýtt markgildi fyrir
hitastig kjötsins, eða bíddu í 10
sekúndur þangað til stillingin vistast
sjálfkrafa.
Hið nýja sjálfgefna markgildi fyrir hitastig
kjötsins birtist í næsta skipti sem
kjöthitamælirinn er notaður.
Þegar kjötið hefur náð markgildi hitastigs,
leiftrar táknið fyrir kjöthitamælinn og
einnig leiftrar sjálfgefið markhitastig.
Hljóðmerki hljómar í tvær mínútur. Það
slokknar sjálfkrafa á ofninum.
5. Ýttu á einhvern hnapp eða opnaðu
ofnhurðina til að stöðva hljóðmerkið.
6. Fjarlægðu kló kjöthitamælisins úr
innstungunni. Taktu kjötið út úr ofninum.
AÐVÖRUN! Farðu varlega
þegar þú fjarlægir odd
kjöthitamælisins og klóna.
Skynjari kjöthitamælisins er
heitur. Hætta er á bruna.
Tímalengd og Endir vinna
ekki með kjöthitamælinum.
Þú getur breytt markgildi hitastigs fyrir
kjöthitamælinn hvenær sem er við
matreiðsluna:
1. Ýttu á :
Fjórum sinnum - skjárinn birtir
skilgreint markhitastig fyrir kjötið sem
breytist á 10 sekúndna fresti þangað
til það nær núverandi kjarnahitastigi
kjötsins.
Fimm sinnum - skjárinn birtir
núverandi hitastig ofnsins sem
breytist á 10 sekúndna fresti þangað
til það nær núverandi ofnhitastigi.
Sex sinnum - skjárinn sýnir það
ofnhitastig sem stillt er á.
2. Notaðu hnúðinn fyrir hitastig til að
breyta hitastiginu.
Að setja upp útdraganlegu rennurnar
Þú getur togað út útdraganlegu rennurnar á
hverri hillu.
ÍSLENSKA
15
Przeglądanie stron 14
1 2 ... 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 ... 31 32

Komentarze do niniejszej Instrukcji

Brak uwag