
ÍSLENSKA 10
Haldgóðráðogvísbendingar
Vísbendingarumorkusparnað
• Opnið ekki hurðina oft eða skiljið hana
eftir opna lengur en nauðsynlegt er.
• Ef umhvershiti er hár, hitastillirinn stilltur
á hærri hita og tækið er fullhlaðið getur
kæliþjappan gengið stöðugt og við að
myndast hrím eða klaki á eiminum. Ef
þetta á sér stað þarf að stilla hitastillinn á
lægri stillingu til að sjálfvirk affrysting geti
átt sér stað og jafnframt að spara orku.
Leiðbeiningarumkæligeymsluferskra
matvæla
Til að ná sem bestum árangri:
• Geymið ekki heitan mat eða vökva sem
gufar upp í kæliskápnum.
• Notið lokuð ílát eða umbúðir fyrir
matvæli, einkum ef þau gefa frá sér
sterka lykt.
• Raðið matvælunum þannig að loft geti
leikið frjálst um þau.
Leiðbeiningarumkæligeymslu
• Kjöt (allar tegundir): geymið í plastpokum
og setjið á glerhilluna ofan við
grænmetisskúffuna.
Til öryggis skal aðeins geyma það
þannig í einn eða tvo daga í mesta lagi.
• Elduð matvæli, kaldir réttir o.s.frv.: rétt er
að geyma undir loki og má setja í hvaða
hillu sem er.
• Ávextir og grænmeti: hreinsið vandlega
og setjið í skúffuna.
• Smjör og ostar: geymið í loftþéttum
umbúðum eða vefjið í álpappír eða setjið
í plastpoka til að halda eins miklu lofti frá
þeim og hægt er.
• Mjólkuröskur: þær eiga að vera með
tappa og geymist í öskugrindinni í
hurðinni.
• Bananar, kartöur, laukur og hvítlaukur:
ekki ætti að geyma þessi matvæli í
kælinum nema í umbúðum.
Vísbendingarumfrystingu
Hér eru nokkrar vísbendingar til að nýta
frystinguna sem best:
• Það magn ferskra matvæla sem hægt
er að frysta á einum sólarhring er sýnt á
merkiplötunni.
• Frysting tekur einn sólarhring. Ekki
ætti að bæta við eiri matvælum á því
tímabili.
• Frystið aðeins matvæli sem eru af bestu
gæðum, fersk og vel hreinsuð.
• Skiptið matvælum í minni skammta til að
þeir frjósi hratt og vandlega og til þess
að aðeins þur að þíða það magn sem
nauðsynlegt er.
• Búið um matvæli í álpappír eða
plastþynnu og gangið úr skugga um að
pakkarnir séu loftþéttir.
• Látið ekki fersk, ófryst matvæli snerta
matvæli sem eru þegar frosin og þannig
hækka hitastigið í þeim frosnu.
• Mögur matvæli geymast betur en feitari,
salt dregur úr geymsluþoli matvæla.
Frystingferskramatvæla
Setjið fersk matvæli sem á að frysta í
frystinn. Látið þau ekki snerta matvæli sem
þegar eru frosin. Til að frysta það magn
matvæla sem sýnt er á gerðarmiðanum er
efsta skúffan tekin úr og matvælin sett beint
á grindina.
Aðbúatilísmola
Fyllið bakkann að 2/3 með vatni og setjið
í frystinn. Notið ekki beitta eða oddhvassa
hluti til að losa bakkann.
Komentarze do niniejszej Instrukcji