IKEA RENGÖRA Instrukcja Użytkownika Strona 43

  • Pobierz
  • Dodaj do moich podręczników
  • Drukuj
  • Strona
    / 52
  • Spis treści
  • BOOKMARKI
  • Oceniono. / 5. Na podstawie oceny klientów
Przeglądanie stron 42
Þegar þú afturkallar frestun á ræsingu
fer heimilistækið aftur í stillingarham.
Þá þarftu að velja þvottakerfið aftur.
Að hætta við valið kerfi
Haltu niðri valhnöppum (B) og (C) samtímis
þar til kviknar á öllum kerfisljósunum.
Passaðu að það sé þvottaefni í þvott-
aefnishólfinu áður en þú setur nýtt
þvottakerfi í gang.
Við lok þvottaferils
Þegar þvottaferli er lokið heyrist slitrótt
hljóðmerki og endaljósið kviknar.
1. Ýttu á hnappinn kveikja/slökkva til að
gera heimilistækið óvirkt.
2. Skrúfið fyrir kranann.
Láttu leirtauið kólna áður en þú tekur það
úr vélinni. Heitt leirtau er brothætt.
Tæmdu neðri körfuna fyrst og svo þá efri.
Vatn getur hafa safnast í hliðar og á
hurð heimilistækisins. Ryðfrítt stál kóln-
ar fyrr en leirtau.
Góð ráð
Vatnsmýkingarefni
Hart vatn inniheldur mikið magn steinefna
sem getur valdið tjóni á tækinu og leitt til
slæmrar virkni tækisins. Vatnsmýkingarefnið
gerir þessi steinefni óvirk.
Saltið í uppþvottavélinni hjálpar við að
halda vatnsmýkingarefninu hreinu og í góðu
ástandi. Það er mikilvægt að stilla rétt magn
vatnsmýkingarefnis. Þetta tryggir að vatns-
mýkingarefnið noti rétt magn af salti og
vatni.
Að raða í körfurnar.
Sjá meðfylgjandi bækling sem sýnir
dæmi um hvernig skal raða í körfur.
Notaðu uppþvottavélina einungis til að
þvo hluti sem þvo má í slíkri vél.
Ekki skal setja í vélinu hluti sem eru gerðir
úr tré, honri, áli, pjátri og kopar.
Ekki setja hluti í tækið sem geta tekið í sig
vatn (svampa, viskustykki).
Fjarlægja skal matarleifar af hlutunum.
Til þess að fjarlægja brunnar matarleifar,
skal skola potta og pönnur í vatni áður en
þú setur þau í heimilistækið.
Raðið hlutum sem eru holir að innan (þ.e..
bollum, glösum og pottum) í vélina þann-
ig að opið vísi niður.
Passaðu að hnífapör og leirtau festist ekki
saman. Setið skeiðar með öðrum hnífap-
örum.
Passið að glös snerti ekki önnur glös.
Leggið smáa hluti í hnífaparakörfuna.
Setjið létta hluti í efri körfuna. Passið að
hlutirnir hreyfist ekki til.
Gætið þess að vatnsarmarnir geti hreyfst
óhindrað áður en kerfi er sett í gang.
Notið salt, gljáa og þvottaefni
Einungis skal nota salt, gljáa og þvott-
aefni sem er ætlað fyrir uppþvottavélar.
Önnur þvottaefni geta valdið skemmdum
á heimilistækinu.
Gljáinn aðstoðar á meðan á síðasta skol-
unarfasa stendur, við að þurrka diskana
án bletta eða ráka.
Samsettar þvottaefnistölfur innihalda
þvottaefni, gljáa og önnur viðbætt efni.
Gættu þess að töflurnar eigi við um það
hörkustig vatns sem er á þínu svæði. Sjá
leiðbeiningar á pakkningunum fyrir vör-
urnar.
Þvottaefnistöflur leysast ekki að fullu upp
ef þvottakerfið er mjög stutt. Til að koma í
veg fyrir leifar þvottaefnis á leirtaui, mæl-
um við með því að töflurnar séu einungis
notaður með lengri þvottakerfum.
Ekki skal nota meira en rétt magn af
þvottaefni. Farið eftir leiðbeiningunum á
umbúðum þvottaefnisins.
ÍSLENSKA 43
Przeglądanie stron 42
1 2 ... 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 ... 51 52

Komentarze do niniejszej Instrukcji

Brak uwag