IKEA RENLIGWM Instrukcja Użytkownika Strona 68

  • Pobierz
  • Dodaj do moich podręczników
  • Drukuj
  • Strona
    / 72
  • Spis treści
  • BOOKMARKI
  • Oceniono. / 5. Na podstawie oceny klientów
Przeglądanie stron 67
Umhverfisábendingar
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu .
Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til
endurvinnslu.
Leggið ykkar að mörkum til verndar
umhverfinu og heilsu manna og dýra og
endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og
raftrænum búnaði. Hendið ekki
heimilistækjum sem merkt eru með tákninu
í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í
næstu endurvinnslustöð eða hafið samband
við sveitarfélagið.
Efni í umbúðum
Efni merkt með tákninu
má endurvinna.
Setjið umbúðirnar í viðeigandi safnílát til að
endurvinna þær.
IKEA-ÁBYRGÐ
Hvað gildir IKEA-ábyrgðin lengi?
Þessi ábyrgð gildir í fimm (5) ár frá uppha-
flegum kaupdegi heimilistækis þíns hjá
IKEA, nema heimilistækið nefnist LAGAN, en
þá gildir ábyrgðin í tvö (2) ár. Framvísa þarf
upprunalegu sölukvittuninni til sönnunar á
kaupunum. Ef gert er við heimilistækið á
meðan það er í ábyrgð, framlengir það ekki
ábyrgðartíma tækisins,
Hvaða heimilistæki eru ekki í fimm (5) ára
ábyrgð hjá IKEA?
Heimilistækjalínan sem nefnist LAGAN og
öll heimilistæki keypt hjá IKEA fyrir 1. ágúst
2007.
Hver sér um þjónustuna?
Þjónustuaðili IKEA veitir þjónustuna í gegn-
um eigin viðgerðarþjónustu eða samþykkta
samstarfsviðgerðarþjónustu.
Hvað nær þessi ábyrgð yfir?
Ábyrgðin nær yfir bilanir á heimilistækinu,
sem orsakast af göllum í smíði þess eða
efniviði frá þeim degi sem það var keypt
hjá IKEA. Þess ábyrgð gildir eingöngu fyrir
heimilisnotkun. Undantekningarnar eru tald-
ar upp undir fyrirsögninni "Hvað nær þessi
ábyrgð ekki yfir?" Innan ábyrgðartímans
nær ábyrgðin yfir kostnað af viðgerð vegna
bilunar, þ.e. viðgerðir, varahluti, vinnu og
ferðir, að því tilskildu að heimilistækið sé
aðgengilegt til að gera við án sérstakra út-
gjalda. Um þessa skilmála gilda viðmiðun-
arreglur ESB (Nr. 99/44/EG) og reglugerðir
hlutaðeigandi lands. Íhlutir sem teknir eru úr
þegar skipt er um íhluti verða eign IKEA.
Hvað gerir IKEA til að leysa vandamálið?
Þjónustuaðili, skipaður af IKEA, mun skoða
vöruna og taka einn ákvörðun um það hvort
þessi ábyrgð nái yfir hana. Ef ábyrgðin telst
ná yfir heimilistækið mun þjónustuaðili IKEA
eða samþykkt samstarfsfyrirtæki annað
hvort gera við gölluðu vöruna eða skipta
henni fyrir sömu eða sambærilega vöru, og
er ákvörðun um það alfarið í þeirra hönd-
um.
Hvað nær þessi ábyrgð ekki yfir?
Venjulegt slit.
Skemmdir af ásettu ráði eða vegna van-
rækslu, skemmdir vegna þess að notkun-
arleiðbeiningum hefur ekki verið fylgt,
skemmdir vegna rangrar uppsetningar
eða vegna þess að tengt er við ranga
rafspennu, skemmdir sem stafa af efna-
fræðilegum eða rafefnafræðilegum við-
brögðum, ryði, tæringu eða vatni, þar
með talið en ekki eingöngu skemmdir sem
stafa af miklu kalki í vatni og skemmdir
sem stafa af óeðlilegum umhverfisaðs-
tæðum.
Hluti sem eyðast eins og rafhlöður og
perur.
Hluti sem hafa enga virkni eða eru ein-
göngu til skrauts og hafa ekki áhrif á ven-
julega notkun tækisins, þar með taldar
rispur og hugsanlegan litamun.
Skemmdir sem verða fyrir slysni vegna
aðskotahluta eða -efna, hreinsunar eða
losunar stíflna í síum, frárennsliskerfum
eða sápuhólfum.
ÍSLENSKA 68
Przeglądanie stron 67
1 2 ... 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72

Komentarze do niniejszej Instrukcji

Brak uwag