
Stjórnborð
1 2
345
1
Gaumljós fyrir hitastig LED
2
Gaumljós fyrir hraða frystingu
3
Skynjari fyrir hurð
4
Hnappur fyrir hraða frystingu
5
Hitastillir
KVEIKT/SLÖKKT hnappurinn
Kveikt á
Setjið klóna í vegginnstunguna.
Snertu hnappinn á hitastillinum ef öll LED
ljós eru slökkt.
Slökkt á
Haltu áfram að snerta hnapp hitastillisins
og haltu honum niðri í 5 sek.
Öll gaumljós slokkna.
Hitastilling
Svona á að setja heimilistækið í gang:
• snertu hnapp hitastillisins þangað til tákn-
ið LED sem samsvarar því hitastigi sem
þarf, lýsist upp. Valið er stigvaxandi, og
breytilegt frá 2 upp í 8°C.
Við fyrstu snertingu hnappsins heldur LED
táknið fyrir raunstillingar áfram að blikka.
Í hvert skipti sem hnappurinn er snertur
færist hitastigið um 1 stöðu til hægri.
Samsvarandi LED blikkar í dálitla stund.
Snertu hitastillingarhnappinn þangað til
rétt hitastig hefur verið valið. Stillingin
festist í minninu.
kaldasta hitastilling: +2°C
heitasta hitastilling: +8°C
Miðlungsstilling er venjulega heppilegust.
Við nánari ákvörðun hitastillingar skal þó
hafa í huga að hitastigið inni í heimilistæk-
inu ræðst af:
• hitastigi herbergis
• hversu oft hurðin er opnuð
• magni af mat í ísskápum
• staðsetningu heimilistækisins.
Aðgerðin hröð frysting
Þú getur virkjað aðgerðina hröð frysting
með því að ýta á hnappinn fyrir hraða fryst-
ingu.
LED táknið sem samsvarar hraðri frystingu
og gaumljósið lýsist upp.
Þú getur stöðvað aðgerðina hröð frysting
með því að ýta aftur á hnappinn fyrir hraða
frystingu.
Það slokknar á gaumljósinu fyrir hraða
frystingu.
Mikilvægt!
Þessi stilling fer af sjálfkrafa eftir 52 klst.
Skynjari fyrir hurð
Tækið er útbúið með innrauðum skynjara til
að nema hvenær hurðin er opin.
Ekki klóra eða bursta gluggann, til að rétt
starfsemi tækisins viðhaldist.
ÍSLENSKA 66
1